Íris Ferðalangur!!
04.09.2007 20:13:27 / iris

Geðveikasta sumar á ævi minni!!!!

Jæja það gerðist margt þetta sumar !

Fyrst byrjaði ég á því að fara með Hildi til Tyrklands, þar var geggjað gaman 8) og eftir þá ferð fékk ég bónorð ! hahahh:haha: Skrítið já ég veit en ég er bara svo auðelskuð :haha:

En svo var það að fara í aðgerð, það var nú kannksi ekkert skemmtilegt, en nú á ég ekki að þurfa að fara í fleiri aðgerðir jíbbbii !!! Ég reyndar þurfti að vera heima í mánuð eftir þessa en það var þess virði !

Svo kom að því að hún Stína mín gekk í það heilaga !! Og veislan var sko geggjuð !! Og þetta gekk allt eins og í sögu ! Til hamingju Stína mín !

Sömu nótt og brúðkaupið var flaug ég til Flórida með Guðrúnu, og þar var sko gaman, og djammað mikið :S Það eiginlega rann ekki af okkur allann tímann ! En ég er með svo mega margar sögur frá florida að ég nenni nú ekki að fara að segja þær allar hérna ! En við vorum þar í næstum 3 vikur .

Við komum heim á föstudegi frá flórida og tókum þá tengiflug til Vestmanneyja !! Þannig að það var bara stoppað heima til að ná í svefnpoka´og hlý föt ! Ég þarf nú varla að segja hvernig eyjar voru það var nátturlega bara geggjað að vanda !! Gleðisveitin Glans fór nátturlega á kostum sumir meira heldur en aðrir !!

En svona var þetta sumar 2 vikur Tyrkland, Mán í veikindarfrí og 3 vikur í Flórida. Þetta gera 9 vikur þannig að ég vann sama og ekkert í sumar en var samt á fullum launum !! ;)

En núna er ég bara byrjuð aftur í skólanum og það er bara ágætt ! Ég er að vinna í því að setja myndir af öllum ferðalögunum, en ég ætla að setja þær á myspace . Þannig að þið getið kíkt á myndirnar á myspace.com/irisdg

Tala við ykkur seinna !

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 19:40:09 / iris

I florida er gott ad vera trallalalalal!!

jaha herna sit eg i blidunni a florida og akvad ad lata vita adeins af mer!!!!

ja eg er semsagt buin ad vera herna i 4 daga eda einhvad svoleidis og vid erum heldur betur bunar ad lenda i aevintyri !!! Ferdin hingad var geggjad erfid i fyrsta lagi vorum vid badar bunar ad sofa i 2 klukkutima og vorum geggjad tunnar!!! En vid komumst nu samt i flugid nema tad ad tegar vid lentum voru einhverjir erfidleikar ad festa stigann a flugvelina tannig vid turftum ad bida geggjad lengi inni i flugvelinni :^) svo var vesen med toskufaeribandid og toskurnar okkar aetludu aldrei ad koma !!!! En loksins komu taer en ta vorum vid eiginlega ordnar of seinar i tengiflugid nema tad ad vi[ hlupum flugvollinn a enda og rett nadum 10min fyrir flugid, tad flug gekk agaetlega nema tad ad tegar vid komum til florida var ovedur tannig ad vid turftum ad hringsola i LANGAN t'ima !!! :^) Svo loksins lentum vid, ja og eg tek tad fram ad a tessum timapunkti var lyktina af okkur ekki beint adladandi !!!! En svo var tad ad taka leigubil af flugvellinum nema tad ad leigubilstjorinn ratadi ekki a hotelid tannig ad tad tok um einn og halfann tima !!!! :^) tannig ad tessi ferd var endalaus og vid attum ekki einu sinni vatn tegar vid komum a hotelid og tad voru 10 km i naestu bud ! vi[ reddudum tvi, hringdum bara a taxa !!! #En vid allavega komumst heilar a holdnu og erum bunar ad hafa gott sidan !!!!

Leigdum okkur bil og haldidi ad iris megagella se ekki bara ordin helviti god ad rata herna, gudrun er lika ad standa sig med kortid !!!!!

En vid erum bunar ad djamma heldur mikid :haha: Og viti menn haldidi ad h'un 'Iris litla se ekki bara ordin astfangin ! FAnn draumaprinsinn fyrsta kvoldid !!! aetli eg verdi ekki bara ad flytja hingad :D Nei tetta er geggjad gaman, nema tad ad hann er ad fara til London 'a manudaginn :cry: En ta verd eg bara ad finna mer einhvern annann til ad verda astfanginn af:lol: nei dj'ok

En 'eg heyri 'i ykkur seinna

Love you longtime


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 00:06:24 / iris

Tyrkland var bara geðveikt !!!

 Þarna erum við rassarnir í gúddí fíling, ég er sko með yfir 500 myndir þannig að ég nenni nú ekki að fara að setja meira inn hérna en hérna kemur einhvað.

 Okei ef einhver hefur séð ljótari gaur en þetta þá býð ég fundarlaun fyrir mynd af honum því að þetta er hrottafengnasti gaur sem ég hef séð á allri minni æfi ! Hann var að vinna á hótelinu og var vægast sagt ógeðslegur.

 Ef þvið sjáið það ekki þá er Hildur næstum því að kúgast af því að hann var kominn svo nálægt henni, hann meiri að segja talaði svo skringilega að við skildum hann ekki, ég held samt að hann hafi verið að tala ensku!

En svo komu myndarlegu mennirnir ég er ekki frá því að þarna eru myndarlegustu menn í heimi !!!!! Allavega ég hef alltaf sagt að draumaprinsinn minn væri með brún augu, brúnt hár og brúnir eins og þið sjáið er hann með svaka far og allt 8|

já okei ég er kannski soldið drukkin ég viðurkenni það ¨!!

 

Svo lennti ég í þessu atviki ég var nú eiginlega ekki alveg viss í hvaða átt ég átti að horfa þannig að ég tók bara fullt af myndum :D

 Við gerðum soldið mikið af þessu :D

 En svo var þynnkan auðvitað hrikaleg eins og kannski sést á þessarri fögru mynd !

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 15:35:20 / iris

Allar heilasellur farnar!

jæja þá held ég að það sé tími til að kíkja á hvað AA hefur að bjóða, því að ég held að ég sé komin lang leiðina að verða massa alkahólisti !!!! Það er sko búið að djamma þessa páskana !Fyrst var byrjað á því að fara á Njálsbúðarball !! Það var mega gaman samt allt morandi í einhverjum smákrökkum en það stoppaði ekki írisi !:lol: SVo var það Skírdagsreiðin sem var bara gaman og veðrið var GEGGJAР!8) En´nei hún íris var engann veginn búin þá svo var það Paparnir á players ! Ég sé sko ekki eftir því að hafa farið þangað !:haha:

En dagurinn eftir þetta allt var ÓGEÐ !!!! Og ég er ennþá að jafna mig, en það stoppar mig samt ekki að fara á djammið í kvöld 8)

Ég er nefnilega að hita upp fyrir Tyrkland og Miami ! Ég þarf að vera komin í góða æfingu þegar ég fer þangað og já það er nefnilega kannski að bætast við ein ferð í viðbót en það kemur bara í ljós ég segi ykkur frá því síðar !

En rassarnir mínir Gleðilega páska eða einhvað !

Heyrumst síðar


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 23:20:08 / iris

Smá breyting !

Jæja það er orðin smá breyting á sumarplaninu!!! Ítalia er off......því að Sasan er að koma snemma heim á ískalndalandið ! Þannig að ég þarf að heimsækja hana seinna! En í staðinn er ég að fara með Hillu pillu til Tyrklands, þar ætlum við að skemmta okkur geggjað vel þangað til við verðum rændar og barðar ! þá hugsa ég að við komum heim þar að segja ef við lifumþetta af :S! ! ! Mammsa pammsa er nú ekkert sátt við að ég sé að fara þangað henni finnst það geggjað hættulegt eða einhvað svoleiðis en síðan hvenar hef ég hlustað á ráð foreldra!!

En ég meina hver fer að ræna tvær saklausar stelpur !!! :haha: hahhhhhh já ég veit við erum tilvalin fórnarlömb en ég meina þetta bjargast alveg ! 8) Við verðum bara cool á því, göngum með múrstein í veskinu eða eitthvað svoleiðis,kannksi piparúða eða þá við finnum bara einhverja sæta Tyrki til að passa okkur :D !

En Miami er ennþá ON 8) við erum bara eftir að setja niður dagsetningu !!!

Þannig að ég get eiginlega ekki beðið eftir að sumarið gangi í garð !!! Já svo er hún Stína mín líka að fara að gifta sig! Stelpan er að vaxa úr grasi !!! :cry:  Ég held samt að ég sé nett stressaðaðri en hún en ég er bara svoleiðis!!! ERfitt að kenna gömul hundi að sitja, ég er samt alls ekki að segja að ég sé gömul ég er ennþá að halda því fram að ég sé að taka út unglingsárin, ég held bara áfram að lifa í voninni !!!

En ég nenni þessu ekki það les þetta hvort sem er enginn :S þetta er meira svona fyrir mig að tjá mig svo ég fari ekki endanlega yfirum !!!!

En blessbless


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 00:23:47 / iris

Næsta sumar verður geggjað !!

jæja

það er búið að vera ansi mikið djamm seinustu dagana og ég er ekkifrá því að ég sé bara að verða gömul ! :cry: Ég er samt ánægð með það að með aldrinum hætti ég að vera jafn mikið þunn eða kannski er það bara af því að ég er komin í æfingu hver veit !

En ég er allvega búin að komast að því að maður á að fara niður í bæ á föstudagskvöldum djíses það er allt morandi í fallegum karlmönnum!!! Ég hef bara ekki orðið vitni að öðru eins!

Þannig að dömur ef þið eruð á lausu þá endilega skellið ykkur í bæinn á föstudögum! Allavega ætla ég að vera þarna í bænum öll næstkomandi föstudagskvöld :D Ég veit eiginlega ekki hvað þetta er en það eru ekki svona fallegir menn á laugardögum eða kannski verð ég drukknari á laugardögum, hver veit !

En nú er ég að plana sumarið !!! VEIEIEIEIEIEI !! Þannnig standa málin eins og er að ég er að fara til Ítalíu að heimsækja Svövu í mai og taka hana svo heim með mér á ískaldalandið  jíbbbíiii ! Og svo kemur það sem ég er búin að bíða ansi lengi eftir í Júli er það Miami baby 8)!!!!!!!!! Ó díses það verður geggjað vá hvað ég get ekki beðið eftir því ! Það verður bara geðveiki svo er planið aðvera komin heim fyrir verslunarmannahelgi og þá eru það eyjar !!! Ég hef nefnileg aldrei prófað að fara einhvað um verslunarmannahelgi á lausu þannig að ég sé fyrir mér geggjað djamm!!!! ég var nátturlega í USA seinustu versló þannig að nú verðiur tekið á þvi!!! vúhhhíúuuuuuuuu

Ég eiginlega get ekki beðið en nú fer að styttast að skólinn klárist og þá kannksi get ég aðeins átt mér líf! Þessi skóli er alveg að kæfa mann! Endalaust próf !! :klikk: en ég massa þetta ! Það er svo lítið eftir !

En jæja nú er ég búin að létta aðeins af hjartanu !

Þangað til næst !


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 00:23:20 / iris

Þorrablót 2007

Jæja þá er þorrablótið langþráða á enda "!!!! Og það var GEGGJAÐ gaman !!!

Helgin reyndar byrjaði óþægilega við þurftum að vakna kl; 7:00 á laugardagsmorgun því við þurftum að bruna austur til að ná í Funa, bíllinn átti að koma að sækja hann klukkan 12;00 og við vorum búnar að ákveða að það yrði geggjað erfitt að ná honum !! En annað kom á daginn, hann labbaði beint upp að okkur, þá var ég nátturlega mega happy! Nema það að svo kom bílinn ekki að sækja hann fyrr en kl:15:00 þannig að við hefðum getað sofið soldið lengur ! En það þýðir ekkert að nöldra yfir því !!!

Svo var það unddirbúningur fyrir Þorrablót 2007 !¨!! Ógeðslega gaman :lol: Byrjuðum að drekka í bústaðnum, og það var drukkið frekar stíft !! :D Og við stelpurnar gerðum okkur gellur, strákarnir voru ágætir líka ;) En það eina sem var leiðinlegt var að það var GRENJANDI rigning ! Og auðvitað þar sem að við vorum búnar að gera okkur svona sætar ´gátum við ekki farið að labba út í rigningunni !! Neibb :^) Þannig að Bjarni keyrði á ball, já ég veit ekki sniðugt en ég get ekki tekið þetta til baka núna !! En ballið var geggjað gaman og svo var auðvitað pottapartý á eftir !!!! Jíbbbíiii það er alltaf skemmtilegast !! :lol:

Okei á ballinu hitti ég gaur sem virtist vera mega saklaus og sætur ! Hann kom í heitapottapartý og einhvað en svo eins og ég er bara stakk ég af !! En þegar ég vaknaði daginn eftir var 15 misst calls á símanum mínum, okei ég hugsaði já hann var bara drukkinn og einhvað !! VÁ HVAÐ MÉR SKJÁTLAÐIST !! okei ég er alveg fyrir það að strákar sýni áhuga en ég er eiginlega orðin hrædd soldið "!!! :^) Hann er ekkert að grínast með þetta, hann vill helst bara flytja saman, giftast og byrja að eignast börn saman, ohhhh...gleymdi ég að segja þetta er portúgali..... þeir eru svona mega rómantískir....jáhh og hann býr hjá Boggu og Svan þannig að ég er komin í klípu! en ættu karlmenn ekki að ná því að ef stelpa svarar ekki í símann alveg í 10 skipti í röð AÐ HÚN HEFÐI EKKI ÁHUGA !! Neihhh....það er of erfitt fyrir útlending ! Eg átti mest asnalegast símtal við hann þar sem að hann gubbaði út úr sér hjartanu, að hann gæti ekki hætt að hugsa um mig og blablabla og ég traðkaði oná því !!! Ohh....oj hvað ég er leiðnleg. En hann var bara greinileg ekkert að ná þessu......sorry maður ! 

Þannig að þetta var skemmtilegt ! Ég meina gott að fá smá egóbúst ;)

En eins og sagði í áramótaheitinu mínu engir karlmenn !! 8)

En jæja ég er hætt þessu bulli það les þetta hvort sem er enginn !! :SÞetta er meira svona fyrir mig að fá útrás ! En ég var líka að setja inn nýjar myndir kíkiði á það!

bæjó


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 23:19:30 / iris

Það er komið 2007 !!!!!!

Ég var búin að skrifa nóg fyrir næsta árið en auðvitað strokaðist það út þannig að ég nenni ekki að skrifa það allt aftur en hérna kemur úrtak úr því.....

Jæja, árið 2006 er búið :cry: Það verð ég að segja hafi verið skemmtilegasta árið mitt hingað til og erfiðasta svona til skiptis ! En meira samt fjör heldur en hitt !!! Það gerðist svo mega mikið árið 2006 að ómugulega nenni ég að fara að segja einhvað frá því !!! ;)

En það er komið 2007 fyrir þá sem ekki vita er það happaárið mitt !!! Enda var því vel fagnað þegar það gekk í garð, jæja þið sem voruð þarna vitið hvað ég meina!! En þessir dagar rétt fyrir áramót og yfir áramótin voru CRAZY það var sko almennilega djammað þá !! Núna verður maður að vera svo stilltur því að maður er skólastelpa 8)

Neihhh......djókur ég skal lofa ykkur því að þetta verður besta árið hingað til !! Á þessu ári er stefnan að gera allt öðruvísi heldur en hin árin !!! það er áramótaheitið og það þýðir engir karlmenn!!!!!!! :klikk:+

En ég er að leita mér að íbúð !! Ég ætla að kaupa mér á þessu ári en leigja hana út meðan ég klára skólann !! Svo flyt ég inn í hana þegar ég er orðin þvílíkt klár og útskrifuð !!!! hvenar sem það verður nú ! það kemur allt í ljós !

En núna er ég búin aðbulla nóg í bili!! Er alltaf að setja nýjar myndir inn fylgisti með !

Bæjó honeys og til hamingju að það sé 2007 !!!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 18:53:39 / iris

10 setningar sem þú munt sennilega aldrei heyra karlmann nota !!!!

Ég verð að segja það að ef að ég finndi karlmann sem notaði þessar setningar yrði ég ogguponsu smeik!

1. Ég ætla að fá mér kók. Get ég fært þér eitthvað í leiðinni?

2. Ég hafði rangt fyrir mér. Þú hafðir á réttu að standa og ég biðst afsökunar á að hafa rifist við þig.

3. Brjóstin á henni eru aaaaallt of stór!

4. Stundum langar mig bara að láta halda utan um mig.

5. Jú, elskan mín... ég ELSKA að nota smokk.

6. Það er langt síðan við höfum farið í Kringluna. Komum endilega að versla og ég skal geyma töskuna þína meðan þú mátar.

7. Ég er hættur við að fara á völlinn með strákunum. Kúrum frekar saman og horfum á Pretty Woman!

8. Ég held að við höfum villst. Stoppum við næstu bensínstöð og spyrjum til vegar.

9. Það er ekki ofsögum sagt að karlmenn séu lélegir ökumenn. Þetta fífl þarna gaf ekki stefnuljós!

10. Ég er fárveikur, en ég get alveg séð um mig sjálfur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 17:45:09 / iris

Þá er það komið !!!

Var að setja inn myndir !!! Loksins tókst það !!! Svo ætla ég að bæta við og setja nokkrar myndir frá því að ég var í USA en það bíður til betri dags !

Sjáumst íris


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 00:02:49 / iris

Komin heim !

Hallú !!!

Svíðþjóð var æði samt kalt en ég segi ykkur frá því þegar ég kem með myndir !

Núna er margt að gerast ! Mammsa pammsa á 50 ára afmæli á morgun eða 8,nóv !

Svo daginn eftir eða 9.nóv er ég að fara að skreppa aðeins inn á spítala ekkert alvarlegt, læknarnir ætla bara aðeins að krufla í mer. Verð komin heim eiginlega strax ég held bara að þeim finnist ég svo skemmtileg að þeir eru alltaf að kalla mig inn í aðgerð. Jæja kannski ekki en ég ætla samt að telja mér trú um það.

Svo er ég heima að jafna mig læt mömmu stjana í kringum mig ! OHhhh...loksins hefur maður einhvern til að hugsa almennilega um sig! Ég er búin að ákveða það að ég ætla að vera heima til allavega fertugs !!! Jáhh.. immitt svo þegar það er búið er það sumarbústaðarferð 17-19 nóv Á föstudeginum ætlum ég og Sessa að slaka á en svo á Laugardeginum er partýyy það átti að vera kveðjupartý fyrir mig en þar sem ég er ekkert að fara verður það bara emmm......já bara partý er það ekki nóg afsökun !

Og viti menn ÖLLUM GLEÐIPINNUM ER BOÐIÐ ¨¨¨!!!!!8)

Þessi bústaður er rétt hjá Laugarvatni þannig að það er ekki langt að keyra þannig að ég vona að sjá sem flesta !!! Hafiði bara samband og þá fáiði meiri upplýsingar !

Jæja þetta er nóg í bili, bless rassarnir mínir !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 23:15:11 / iris

ÉG FÉKK VINNUNA!!!!

jája ég fékk vinunna í Danmörku !!! En ég þáði hana ekki ;) Skrítið ég veit en hún vildi  fá mig í ár og ekki minna þannig að ég afþakkaði það bara. Ég er ekki alveg tilbúin að fara í svona langann tíma. Þannig að nú hefst bara næsta leit.

Það er reyndar búið að bjóða mér að koma aftur að vinna í sumarbúðunum sem ég var að vinna í seinasta sumar þannig að maður ætti kannski bara að skella sér þangað í sólina 8)

En þá er planið bara að fara í skóla þannig að maður verði ekki ólærður alla ævi! Og ekki er verra að hækka soldið í launum. Ég er nefnilega orðin svo peningagráðug ég er nefnilega búin að vera svo dugleg að safna að ég vil bara meira og meira!!! Svo þarf maður að safna fyrir öllum þessum ferðalögum sem maður er endalust í !! :lol:

Svava vinkona er nefnilega búin að undirbúa einhverja heimsreisu og einhvað þannig að ég þarf að standa mig í söfnuninni og svo er ég að fara til Indlands í brúðkaup á næsta ári ;) Það er verst að mér finnst Indverskir karlmenn ekkert spennandi. En það verður samt gaman!!

Ég fer til Svíþjóðar á föstudaginn og ég læt ykkur vita hvernig gengur þar. Svo eru nátturlega allir orðnir spenntir er bóndinn sætur eða ekki :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 16:34:56 / iris

Nú er það næsta ferðalag!!!

já ég er immitt komin heim en ekki lengi ég er að fara til Svíþjóðar 20 okt að heimsækja Aron og Mary og stelpurnar þeirra tvær það var nefnilega að bætast í fjölskylduna !!! :D En þar ætla ég að skoða sveitabæ sem ég get kannski unnið á soldið skemmtilegt að segja frá því það er einhleypur bóndi 24 ára gamall sem á hann! Haldiði að það gæti ekki verið gaman !! :lol: ég þarf reyndar að kíkja á gripinn fyrst það geri ég leið og ég fer út !!! ;)

En svo er það annað það er hestbúgarður út í Danmörku sem er að leita að fólki í vinnu, semsagt þau eru með 90 íslenska hesta og vantar einhvern til að fara með útlendinga í hestaferðir ! Og hver er betri í það en ég ! Kann ekkert á hesta en er örugglega ágætasti guide :D

Já það er semsagt mikið á dagskránni hjá mér og ekkert að því fellst í því að vera hérna á Íslandi !! Núna þegar ég er búin að kynnast öðru vil ég bara halda áfram að ferðast! Jahh...hver veit....ég gæti orðið íslensk aftur ef ég finn einhvern karlmann mér finnst allir hérna vera stórskrítnir, þeir eru alltaf í einhverjum leik sem ég er ekki að ná! Annaðhvort eru þeir allt of mikið að hafa samband eða of lítið ! Trúið mer ég fíla ekki þessa týpu sem lætur mann ekki vera en auðvitað eiga þeir að hafa samband (OFT) en ekki of !!! Og hvað er það með þessa reglu ekki hringja fyrr en eftir 2 daga þetta er mesta bull sém ég hef heyrt ! jæja ég ætla ekki að byrja á þessu við sjáum hvernig fer !!!

Allavega hér með auglýsi ég eftir heilbrigðum íslenskum strák !! :haha:

Puff.....hvern ég er að gabba það er ekki til ! :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 16:28:06 / iris

Hallú!!

ÉG ER KOMIN HEIM !!!!!! 8) :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2